**Folmeah**
2005 útskriftarbekkir
- Myndir -
11.07.2008 10:14:29 / volmer

Hittingur á Karó, þriðjudaginn 15. júlí kl. 20

Hæhó gott fólk,

Það væri voða gaman ef sem flestir gætu komið. Ég geri mér grein fyrir að margir eru arfaslakir að kíkja á þessa síðu og því væri frábært ef hægt væri að láta boðin berast :D Eníveis, hlakka til að sjá ykkur fallega fólk!


kv.
Ernie

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 12:48:22 / volmer

Hrönn...

...ertu ennþá ólétt?!?

koddu með fréttir kona! :D

Svo ég komi með pínu uppfærslu þá er Fjóla búin að skíra.. skvísan fékk það fallega nafn Lilja Þöll, til hamingju með það :Þ
Stella okkar er að koma með kríli í september! innilega til hamingju með það..
Rakel er komin frá USA, reyndar bara í sumarfrí.. njóttu sumarsins!
Ég er búin með 3ja bekkinn í hárgreiðslunni, þannig að ég á ca. 1 og 1/2 ár eftir :D rúllaði því náttúrulega upp ;)

Ég er ekki með fleiri fréttir.. sé engann og hitti engann.. híhí

En ef fleiri eru að fjölga sér, látið vita fólk :D ekki halda neinu leyndu :P


endilega dritið einhverju hérna niður elskurnar.. eru allir stonedead eða?

kv. úr blíðunni á eyrinni
Aníka "ríki hárgreiðsluneminn"



» 8 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 12:53:26 / volmer

fyrsti erfingi 4.A komin í heiminn!

ég vildi bara óska Fjólunni okkar  og Eisa til hamingju með litlu prinsessuna :lol:

gangi ykkur vel í foreldrahlutverkinu!


kv.
Aníka

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 10:28:01 / volmer

Það eru fleiri sem fjölga...

hahaha nei ég er ekki ólétt! EN, eftir að Moli minn dó í sumar þá var tilveran heldur tómleg. Það fór svo að fyrir jólin kom nýr fjölskyldumeðlimur - franski bolabíturinn Húgó.

Húgó er sá hvíti með svörtu grímuna. Hinn er frændi hans fyrir norðan.

Annars er allt gott að frétta af mér, skólinn heldur áfram og ef allt gengur að óskum þá get ég kallað mig lögfræðing í júní! Hvað verður 4.A svo að gera í sumar? Ég reikna með að vera að vinna í þjóðlendumálunum fyrir norðan, en annars áfram hjá Höldi ef það gengur ekki eftir.

Læt þetta duga í bili - fyrsta bloggfærslan mín hér!

Hilsen,
ABB

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 09:37:22 / volmer

Jæja jón!

Hvurslags leti er í mannskapnum?

Sama leti og í mér sennilega, sit eins og endranær í vinnunni, algerlega snjóuð inni. Tók sveitastelpuna á'etta í morgun þegar ég var að grafa bílinn út úr skaflinum á planinu heima. Öskraði og urraði af eldmóð, settist svo upp í bílinn, setti í bakk, lokaði augunum og geystist af stað út af stæðinu. Sem betur fer urðu öngvir bílar fyrir mér. Hver segir að litlar, ljóshærðar, kasóléttar stelpur á sokkabuxunum geti ekki keyrt í þessu aftakaveðri. Þar sem við erum jú flest alin upp norðan heiða þá kallast þetta nú kannski ekki mikið. En magnað hvað borgarbúarnir geta nú vælt;)

Annars gengur allt vel hjá mér, datt í hug að skella inn smá fréttaskoti af mér og erfingja 4A. Bumban stækkar og stækkar, bara rétt rúmur mánuður eftir í fyrirliðann! Hvernig væri nú krakkar að taka sig saman í andlitinu og reyna að stofna fótboltalið. Við erum nú þegar komin með tvo leikmenn. Hver er næstur?

Annars er maður farinn að huga að því að hætta í vinnunni, tími til kominn, alveg að gera mig gráhærða. Nú er ég á fullu spani að finna mér eitthvað til dundurs þessar 2-3 vikur sem ég ætla að vera heima fyrir áætlaðan dag:) Allar hugmyndir og heimsóknir vel þegnar:)

Hvernig væri svo að fá að heyra aðeins frá henni Hrönnsu pönnsu? Hún skellir hér inn þessum mögnuðu fréttum og lætur svo ekkert í sér heyra? Annars bara almennt langar mig að vita hvað þið eruð að brasa, alger óþarfi að segja upp áskriftinni að bekkjarfélugunum, við höfðum það nú alveg ágætt er það ekki;)

http://myndir.bloggar.is/myndir/237/44973/47aa17448fea3.jpgSkelli hér inn í lokin mynd af bumbunni, hvar eru tærnar á mér???? Fleiri fréttir á www.fjolan.bloggar.is en mér finnst alveg þess virði að reyna að halda þessari síðu á lofti:)

Verið dugleg að kommenta og blogga!


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 16:01:03 / volmer

..

Gleðileg Jól

>


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 20:14:26 / volmer

Ég er líka með aðrar gleðifréttir

Ég á líka von á barni!! :lol: Það er von á litla krúttinu í 30 apríl- 15 maí. Það er ekki komin endanleg dagsetning. En til hamingju fjóla og eisi!! Til hamingju líka aníka og helgi hrafn!!

Kveðja Hrönn


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 16:13:26 / volmer

...

af einhverri óskiljanlegri ástæðu hafa síðustu 2 nýjustu færslurnar þurrkast út..

 

 

en endilega allir að skrifa eitthvað hérna inn og jafnvel ef það hafa orðið einhverjar breytingar hjá ykkur, að skrifa það inn í "hvað er 4.A að gera?" það er orðið frekar oldie! :D

 

en annars bara allir eð vera duglegri við að skrifa inn, commenta og eitthvað! :D

 

later dogs!

Aníka "semhefurekkertaðgeraívinnuni"


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 20:33:29 / volmer

Skemmtilegar fréttir!

Sæl öll mín kæru!

 

Það er helst í fréttum að ég var í nýnemaferð með stjórnmálafræðinemum HÍ um daginn, sem væri ekki í frásögur færandi ef að ég hefði ekki skemmt lýðnum með því lagi konunga og mörgæsa Gaudeamus. Ég er s.s. búin að skipta um svið, hætti í málvísindum og byrjaði í staðinn í stjórnmálafræði. Ég fór líka í heimsreisu síðasta vetur og heimsótti Asíu, Ástralíu og Suður-Ameríku. En hins vegar er ég ekki að skrifa inn nýja færslu hér út af því, heldur vegna þess að

4.A á von á sínum fyrsta erfingja 

og vil ég óska Fjólu og hennar góða manni innilega til hamingju með þetta glæsilega afrek. Ég biðst líka fyrirfram afsökunar ef að í bekknum leynast einhverjir lausaleikskrógar sem láðst hefur að segja frá á þessari annars virku síðu. 

 Fyrst að við erum í hamingjuóskunum þá eiga Aníka og Helgi Hrafn eina svoleiðis frá mér fyrir brúðkaupið í sumar og sömuleiðis Unnur og Siggi. Ég hvet aðra bekkjarfélaga til að taka einnig þátt í að vera fullorðins - held að við séum nefnilega að tapa feitt fyrir hinum bekkjunum, allavega með krílin. U-ið á held ég vinninginn núna?

 

Annars bið ég ykkur vel að lifa - sakna ykkar og væri ótrúlega til í að heyra frá fleirum hvað þeir eru að brasa úti í hinum stóra andans heimi.

 Ást og kossar

Bergþóra 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 16:13:58 / volmer

Hey suckers!

Jæja, þetta gengur ekki lengur.

 Ég ætla að gera lokatilraun til þess að lífga þetta fjandas blogg við. Ótrúlegt en satt þá hef ég virkilega áhuga á því að sjá og heyra frá ykkur gömlu gerpin mín

Ég sit hérna á skrifstofunni í Sundahöfn, jájá er enn að vinna hjá Eimskip. Og ykkur til mikillar skemmtunar þá býst ég við að fara að læra dönsku eftir áramót. Já dönsku, heillirnar mínar. Ætla að taka þetta með trompi, blaka vængjum og taka við af henni Ragnheiði okkar elskulegri í framtíðinni.

En ég ætlaði nú bara að hafa þetta stutt. Það þýðir ekkert að plata mig, 13 heimsóknir komnar í dag, ég veit að þið eruð þarna úti!!!!!

Endilega látið heyra í ykkur í kommentunum, þarf ekki að vera lengra en þrjú orð. "Ég sakna ykkar" verða mín þrjú orð að þessu sinni.

http://www.banika.net/userfiles/Image/photogallery/myndataka4a/IMG_1974.JPG

Kv

Fjóla


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 20:44:37 / volmer

Jeremías !

 Ef við erum ekki óvirkusti bloggbekkurinn í sögu M.A. þá veit ég ekki hvað!! en alla vega!

 

Er ekkert að frétta af ykkur?!? mér finnst að allir eigi að commenta um hvað er að frétta af sér! er það ekki??

 

Af mér:

* Ég er að rotna í RVK, nota bene í Breiðholtinu!

* Er að læra hárgreiðslu, finnst það geggjað gaman! fer svo í sumar að vinna á Passion!

* Ég er að fara að gifta mig í sumar.. Hlakka ógó til! :D

* Man ekkert meira, þarsem ég lifi með eindæmum óspenndi lífi þessa dagana!

 

En hvernig er það, fer ekki að koma erfingi frá 4.A? ha?! endilega komiði með djúsí stöff!! :D

 

Dúllurnar mínar, mig langar að heyra í ykkur!! :D

Kv.

Aníka Lind 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 18:15:07 / volmer

Það eru komin jól

Góðan daginn og gleðileg jólin.

Vonandi hafið þið það gott um hátíðirnar og njótið þess að vera í faðmi fjölskyldunnar... og að opna gjafir og borða góðan mat. Ég er núna að bíða eftir þvi að pabbi komi og sæki mig og systur mína til þess að fara til ömmu að halda upp á 85 ára afmæli hennar. Svo fæ ég vonandi aftur hamborgarhrygg annað kvöld því þá verður mamma heima. Við systurnar opnuðum tvo pakka hvor eftir matinn í gær og ætluðum að geyma restina fram á annan í jólum þegar mamma yrði heima en svo kom hún heim um miðnættið þannig að við opnuðum restina þá. Mamma fór svo aftur í vinnuna klukkan hálf 7 í morgun.

Gleðileg jól gott og farsælt komandi ár       

Erla Rún


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 12:43:08 / volmer

kuldi kuldi kuldi

Lífsmarkið er álíka mikið á þessari síðu og hitinn úti er hár! Síðasti skóladagurinn á þessari önn var í gær og framundan eru próf dauðans. Af mér er svo sem allt gott að frétta, en ég er enn að jafna mig eftir hræðilega lífsreynslu í nótt. Mig dreymdi að ég settist á spinning-hjól í matsalnum í HR með vini mínum (hjólið var fyrir 2) og hamaðist á blessaða hjólinu. Það sem stóð upp úr voru bláu spandex-stuttbuxurnar sem vinur minn var í! Jæja, læt þetta duga af draumförum mínum en vil þess í stað fá að heyra frá ykkur kæru volmeringar. Hvað er að frétta??? Kv.ABB

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 22:52:37 / volmer

Back to school again...

Elsku fólk.

Nú er haustið komið og sumarvinnunni minni að ljúka svo maður hefur víst ekki lengur afsökun fyrir að vera algjörlega fullkomlega og ævinlega offline... Nú er það bara bloggbloggblogg, heyriði það öllsömul! Þeir sem hafa verið í fríi frá tölvunni eins og yðar einlæg, bara 1-2-3 og í gírinn aftur, takk.

Mér finnst svo leiðinlegt að týna fólki.

En um daginn fann ég Bensa á Bláu könnunni, hugsiði ykkur! Og Sveinn Daníel birtist mér þar sem ég var að þræla í Bókval. Og þar með hafði ég endurheimt mennina tvo sem svo sárt var saknað á sextándanum.

Persónulega er ég á leið úr landi. Ah'm off ta' England ta geh' mahself a decen' bloke... An' I've go' a cunnin' plan to catch'im.

Helga Baldrick


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 23:24:34 / volmer

Hvar er liðið?

Hæ allir.. ég ákvað aðeins að kíkka hérna inn, og ekki er nú mikið um færslurnar! ég viðurkenni það alveg að ég mætti vera duglegri við að tjá mig hérna, en vinnan hefur tekið allann minn tíma í sumar og nú er pestin lögst á mig, þannig að ég hef ekkert annað að gera..

Annars langaði mig bara að kasta á ykkur kveðju og langar kannski að ath hvernig haustið leggst í ykkur öllsömul.. nú er ekki langt í að ég elti flest ykkur suður ha!  :haha:

En litlu mörgæsirnar mínar, látið heyra í ykkur.. hehe :lol:

KV.
Aníka litla veika mörgæsin!

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4